Sunnudagur 18. október 2026

Ekki moka burt hrauninu! 

 

Stöðvum það ferli sem bærinn hefur sett í gang :: Ákall frá ungu Eyjafólki 

Okkur finnst óskiljanlegt að bærinn hafi sett af stað ferli til að moka nær ósnortnum hluta hraunsins í burtu til þess að búa til miðbæ þegar nóg pláss er til staðar til að gera núverandi miðbæ enn betri. Það er ekki eingöngu kostnaðurinn við moksturinn og flutninginn á 680 þúsund rúmmetrum af jarðvegi sem eðlilegt er að setja spurningamerki við. Einnig sú staðreynd að í næsta nágrenni er fiskimjölsverksmiðja og mjölgeymslur sem illa passa nálægt byggð. En síðast en ekki síst er það náttúruverndin sem við viljum að í þessu tilfelli fái að ráða för.

 

Samkvæmt okkar upplýsingum kostar vel yfir þúsund krónur að moka og flytja einn rúmmetra af jarðvegi stutta vegalengd. Því er kostnaðurinn himinhár, eða um milljarður, og hækkar byggingarkostnað verulega. Hvernig á hálfrifið hraunið að líta út, með 20 metra hæðarmun frá vegi til hrauns? Þetta verður ekki falleg sjón.

 

Fyrir marga Eyjamenn er hraunið næstum því heilagt, sérstaklega sá hluti hraunsins sem lítið hefur verið raskað. Þarna er vinsæl göngu-, hlaupa- og hjólaleið fyrir íbúa og fyrstu fótsporin sem margir ferðamenn taka til að skoða hraunið byrja í skemmtilega regnbogastiganum. Við skorum á frambjóðendur og flokka til að setja alvöru náttúruvernd á oddinn á komandi kjörtímabili og stöðva áform um að moka hrauninu burt.

 

Aníta Lind Hlynsdóttir 

Anna María Lúðvíksdóttir 

Arnar Freyr Ísleifsson

Birta Sól Sæþórsdóttir 

Breki Einarsson 

Eva Sigurðardóttir 

Guðfinna Dís Sveinsdóttir 

Helga Lind Halldórsdóttir 

Helgi Birkis Huginsson 

Jón Ævar Hólmgeirsson 

Klara Örvarsdóttir 

Marcin Kazimierz Zaborski 

María Fönn Frostadóttir 

Melkorka Mary Bjarnadóttir 

Ragnheiður Sigurðardóttir 

Saga Tórshamar 

Salka Sól Örvarsdóttir 

Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir 

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search