Starfsfólk Herjólfs vill góðfúslega benda farþegum sínum á að bæði veðurspá og sjólag fyrir næstu daga er ekki hagstæð þegar kemur að siglingum til Landeyjahafnar, því biðja þau farþega sína sem ætla sér að ferðast með Herjólfi í vikunni að fylgjast vel með miðlum Herjólfs.
Um er að ræða daganna 1-5 febrúar.
Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn, þá gefum við út tilkynningu kl. 06:00 í fyrramálið.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar, eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað, það er að segja lak, kodda og sæng/teppi.
Einnig bendir starfsfólk Herjólfs á, að á þessum árstíma er alltaf hætta færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Forsíðumynd Hólmgeir Austfjörð

