28.11.2020
Á fundi fræðsluráðs síðasliðin miðvikudag var tekin fyrir sumarlokun og sumarleyfi leikskólanna sumarið 2021.
Samkvæmt ánægjukönnun sem gerð var meðal foreldra og starfsfólks leikskólanna voru þeir starfsmenn sem svöruðu könnuninni ekki ánægðir með fyrirkomulagið á sumarlokun og sumarleyfi síðast liðið sumar.
Þátttaka starfsfólks í könnuninni var hins vegar dræm og því var ákveðið að kanna hug þess frekar. Það kom meðal annars fram í samtölum stjórnenda við starfsfólk að það hefði viljað hafa sumarlokun seinna og betra væri að hafa hana fjórar vikur og að foreldrar gætu valið fimmtu vikuna fyrir eða eftir lokun.
Ráðið mun taka ákvörðun um fyrirkomulag sumarlokunar og sumarleyfis á næsta fundi ráðsins þann 16. desember næst komandi.