Í síðustu viku var bifreið ekið á gangandi vegfaranda í Vestmannaeyjum. Sem betur fer var þó ekki um alvarlegt slys að ræða sem öðru fremur má þakka því að ökuhraði bifreiðarinnar var ekki mikill segir í færslu á facebooksíðu Lögreglunnar í Vestmannaeyjum.
Lögreglan vill ítreka enn og aftur mikilvægi þess að gangandi vegfarendur noti endurskinsmerki. Sérstaklega er því beint til foreldra að tryggja að börnin séu búin endurskini sem sést vel en rannsóknir sýna að ökumenn bifreiða sjá vegfarendur með endurskin fimm sinnum fyrr en ella.
Á vef Samgöngustofu, er m.a. að finna hagnýtar upplýsingar er varða endurskinsmerki.

Forsíðumyndina tók Pétur Steingrímsson.

