05.10.2020
Einsi Kaldi tilkynnti í dag að ekki væri rekstrargrundvöllur fyrir þau að hafa opið á meðan að 20 mega eingöngu koma saman:
Hér er tilkynningin:
Elsku vinir
Heilsa og öryggi starfsfólks okkar og gesta er okkur afar mikilvæg og fylgjum við fyrirmælum yfirvalda varðandi samkomubann vegna covid-19. Það er því miður ekki rekstrargrundvöllur fyrir okkur þegar aðeins 20 mega koma saman og verður því veitingastaðurinn lokaður næstu tvær vikurnar.
Þetta er verkefni sem allir þurfa að vinna saman og vonandi getum við tekið á móti ykkur í mat & drykk fyrr en seinna.
Farið vel með ykkur
Einsi Kaldi & starfsfólk