Ari Eldjárn er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér góðs orðs víða erlendis fyrir gamansýningar sínar. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix en þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna manna, sem horfðu á og höfðu gaman af. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.
Nú stendur hann fyrir skemmtilegri uppistandssýningu þar sem hann prófar nýtt grín. Sýningin sló svo sannarlega í gegn í Höllinni um síðustu helgi.
Ari mætti með leynigest með sér en það var Andri Ívarsson sem náði salnum á sitt band.
Tígull mælir svo sannarlega með þessari sýningu og látum okkur hlakka til þegar hann mætir aftur á Eyjuna aftur í desember að hans sögn.





