Einfalt lasagne
Hráefni:
1 bakki nautahakk (um 500 g)
1 laukur, hakkaður
salt og pipar
1 dós góð pastasósa (t.d Hunt´s pastasósu í glerkrukku með bragðtegundinni garlic & herb)
1 dós sýrður rjómi
1 grænmetisteningur
1 stór dós kotasæla
lasagnaplötur
rifinn ostur
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn þar til hann byrjar að mýkjast. Bætið nautahakkinu á pönnuna og kryddið með pipar og salti.
Hellið pastasósunni og sýrða rjómanum yfir og hrærið saman. Setjið grænmetistening út í og látið sjóða við vægan hita um stund, 10 mínútur.
Setjið til skiptis í eldfast mót lasagnaplötur, kjötsósu og kotasælu. Þú ættir að ná tveim til þrem lögum miðað við meðalstórt mót.