Einangrun stytt í 7 daga – reglur um styttri tíma

Í samráði við sóttvarnalækni hefur heilbrigðisráðherra gert breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021.

Með reglugerðarbreytingunni er einangrun einstaklinga sem hafa greinst með COVID-19 þannig stytt í 7 daga.

Telji læknar COVID-19 göngudeildar Landspítala hins vegar nauðsynlegt að framlengja einangrun einstaklings er þeim það heimilt.

„Við sjáum gríðarlegt álag á heilbrigðisstofnunum vegna mikilla smita í samfélaginu, sérstaklega er álagið mikið á Covid-göngudeild Landspítalans. Við sjáum líka víðtæk áhrif smita á samfélagið allt og því tel ég þetta vera rétt skref. Ég hvet fólk til þess að halda áfram að fara varlega, og sýna starfsfólki Covid-göngudeildar áfram þolinmæði og virðingu. Við erum öll í þessu saman.“ Segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Reglugerðarbreytingin tekur nú þegar gildi og getur bæði haft áhrif á lengd einangrunar hjá einstaklingum sem greindust með COVID-19 fyrir gildistöku, sem og eftir gildistöku.

Stjornarráðið.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is