Fimmtudagur 8. október 2026

Efnisvinnsla víkur frá Spröngunni – stefnt að endurheimt svæðisins

Stefnt er að því að efnisvinnsla við Sprönguna víki af svæðinu og að ráðist verði í endurheimt þess og bætta aðkomu. Málið var tekið fyrir á fundi umhverfis og skipurlagsráði Vestmannaeyjabæjar, en samkomulag við Steina og Olla um afnot af bæjarlandi við Sprönguna er útrunnið.

Sprangan hefur um langt skeið skipað sérstakan sess í sögu og menningu Vestmannaeyja auk þess að vera vinsæll áfangastaður ferðamanna. Á undanförnum árum hefur fyrirtækið Steini og Olli haft afnot af svæði þar við til efnisvinnslu.

Nýr samningur Vestmannaeyjabæjar við aðila sem sinna efnisvinnslu í Vestmannaeyjum felur hins vegar meðal annars í sér að efnisvinnslan við Sprönguna víki af svæðinu.

Ábendingar um ásýnd og erfiða aðkomu

Ábendingar hafa borist um að aðkoma að Spröngunni sé erfið, ekki síst fyrir rútur, auk þess sem gerðar hafa verið athugasemdir við ásýnd svæðisins.

Í gögnum sem lögð voru fram með málinu má meðal annars sjá umfang efnisvinnslusvæðisins og núverandi aðstæður þar. Ljósmyndir sýna vinnslubúnað og efnishauga í næsta nágrenni við Sprönguna.

Fyrir liggur einnig deiliskipulagstillaga fyrir Sprönguna þar sem afmörkun svæðisins, lóðir og aðkoma koma fram.

Búnaður og efni verði fjarlægt

Þar sem samkomulag um afnot af bæjarlandinu er útrunnið hefur starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar verið falið að ræða við Steina og Olla um að fjarlægja búnað og efni af svæðinu.

Jafnframt er lagt til að við gerð fjárhagsáætlunar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2027 verði tekið tillit til kostnaðar við framkvæmdir til að bæta aðstöðu og aðkomu að Spröngunni.

Með því yrði stigið skref í átt að endurheimt svæðisins og bættri umgjörð um þennan sögulega stað í Vestmannaeyjum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search