17.03.2020
Íslendingar ætla nú að feta í fótspor nágrannaríkja sinna og klappa fyrir heilbrigðisstarfsfólki landsins fyrir utan heimili sín.
Fjöldi Íslendinga hefur boðað þátttöku sína í heldur óvenjulegum viðburði sem fram fer um allt land næstkomandi föstudag. Þá ætlar fólk sér að klappa saman lófunum til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki landsins.
„Heilbrigðisstarfsfólkið í landinu okkar á svo sannarlega hrós skilið fyrir alla þá óeigingjörnu vinnu sem það hefur unnið núna síðustu vikur,“ segir í lýsingu viðburðarins á Facebook. Það hefur ekki farið framhjá neinum að starfsfólk heilbrigðisgeirans hefur staðið í ströngu undanfarið í baráttunni við COVID-19 faraldurinn.
Lófatak um land allt
Viðburðurinn tekur sér lönd á borð við Kína, Spán og Ítalíu til fyrirmyndar þar sem fólk sýnir samstöðu með því að sameinast í lófaklappi út um glugga og svalir á tímum sóttkvíar og einangrunar.
Gjörningurinn fer fram næstkomandi föstudagskvöld klukkan 19:00 og þar sem samkomubann er enn í gildi, og fjöldi fólk sætir nú sóttkví, er fólk hvatt til að klappa fyrir utan heimili sín, vinnustað, í bílum, úti á svölum eða gluggum. Heilbrigðisstarfsfólk landsins ætti því að geta heyrt lófatakið hvar sem það er statt á landinu.
Hér fyrir neðan má sjá hvernig álíka viðburður fór fram á Spáni.