Fyrr á árinu óskaði hafnarstjóri eftir verðhugmyndum frá þremur verkfræðistofum vegna greiningar á þörf samfélagsins á stórskipakanti. Tvær verkfræðistofur, Efla og Verkís skiluðu inn verðhugmyndum og upplýsingum um hvernig þær myndu nálgast verkefnið.
Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs sem var haldinn 5. júlí sl. var skipaður 4 manna vinnuhópur til að skoða þessi gögn og meta hvaða verkfræðistofa kæmi hvað best til móts við hugmyndir ráðsins.
Á fundi ráðsins í gær greindi svo vinnuhópurinn frá því að hann telur hugmyndir Eflu falla betur að því sem ráðið hafði rætt um og leggur til að samið verði við þau.
„Menntun þeirra starfsmanna sem eiga að sinna verkefninu er víðtæk og vegur þar þyngst að í hópnum er bæði hafnarverkfræðingur og samgönguverkfræðingur. Útlistun á því hvernig eigi að vinna verkefnið er skýr. Verkefnið verður allt unnið af starfsmönnum Eflu. Áætluð verklok henta betur varðandi framhaldið m.a. vegna vinnu við gerð samgönguáætlunar,“ segir í fundargerð ráðsins.
Í vinnuhópnum sátu: Erlingur Guðbjörnsson formaður, Sæunn Magnúsdóttir varaformaður, Ólafur Snorrason framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Dóra Björk hafnarstjóri
Ráðið samþykkir tillögu starfshópsins og felur hafnarstjóra framgang málsins.

