Í tilkynningu frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja ítreka þau að allar hjálparbeiðnir skuli berast í gegnum 112 sem boðar þau út í samráði við Lögregluna.
Kæru Vestmannaeyingar, nú er lognið aðeins að flýta sér hjá okkur og kemur til með að hvessa þegar á líður kvöldið. Rétt er að ítreka það að allar hjálparbeiðnir skulu berast í gegn um 112 sem boðar okkur út í samráði við lögreglu.
Blaðamaður Tíguls kíkti á bryggjuna í dag, það var farið að blása hressilega þá.
Forsíðumynd: Pétur Steingrímsson.

