Tryggvið Hjaltason eða eins og mörg ykkar þekkja sem manninn sem stefnir á að verða 200 ára. Er með skemmtilegan og fróðlegan pistil á facebooksíðu sinni sem við fengum leyfi til að birta hér:
Ég ætla að miðla löngu ferðalagi hérna á næstu vikum með ykkur. Ég hef í nokkur ár velt fyrir mér eftirfarandi spurningu:
Ef ég ætla að verða 200 ára gamall. Hvað er besta heilsu/líkamsræktin?
Ég byrjaði á að setja eftifarandi skilyrði til viðmiðunnar til að geta svarað spurningunni:
- Ég get sett mér erfið stigvaxandi markmið sem setja á mig áskorun.
- Árangur leiðir ekki til augljósra álags meiðsla, skerðingar eða ósymmetríu í getu og vöðvasamsetningu líkamans. (of sterkur efri líkami, vanrækir bak, eyðandi högg á liði osfrv)
- Það er hægt að stunda æfingar/keppni fram á gamals aldur.
- Árangur leiðir til þess að heildargeta líkamans skalast jákvætt og eykur heildar álags/átak/hreyfigetu.
(dæmi: að geta klætt sig í sokka upprétt áttræður, lyft þyngd yfir haus án þess að þurfa að ofreyna vöðva sem ættu ekki að bera lykil átak osfrv).
Þetta var laaangt ferðalag og margar íþróttir/hreyfingar komu til greina en ég lenti alltaf á einhverskonar takmörkun gagnvart skilyrða listanum mínum.
Ég var svona við það að gefast upp þegar ég fann svarið (held ég) í janúar 2021.
Calisthenics (æfingar með eigin líkamsþyngd).
Calisthenics/líkamsþyngdaræfingar byggja á grunni úr fimleikum án þess að vera með öll högginn (ef ég einfalda mikið).
Í hroka mínum hélt ég að ég væri bara í nokkuð góðu formi og gæti hratt náð árangri í þeim sjö grunn calisthenics æfingum sem flestir í þeim bransa leggja fyrir sig að „mastera“.
Vá hvað ég hafði rangt fyrir mér. Eftir 18 mánaða ferðalag er ég bara kominn með 12,29% árangur gagnvart grunninum sem ég setti mér kjarnamarkmið fyrir í byrjun (meira um þetta seinna).
Af hverju?
Í fyrsta lagi hef ég unnið við tölvur síðan ég var 22 ára og var með of stuttan psoas vöðva, of veikan „core“ (magavöðvar og neðri bakvöðvar) og vantaði talsvert upp á grunn liðleika til að geta náð lágmarksárangri í næstum öllum grunn greininum. Áfram gæti ég talið hér.
Ekki hjálpaði síðan að næstum allar æfingarnar eru þess eðlis að þær henta betur ef maður er lágvaxinn.
Þarna byrjaði ég að vorkenna sjálfum mér og var næstum búinn að fara bara og finna eitthvað annað…
en ég ákvað frekar að setja mér bara langtíma markmið (nokkurra ára) og byrja ferðalagið.
Því ferðalangi langar mig aðeins að miðla með ykkur á næstu misserum því ég er ennþá svo sannarlega í mikilli brekku með það og vantar pepp. Þá hefur ferðalagið hefur verið ein stanslaus auðmýking þar sem ég fatta aftur og aftur að ég er ekki eins góður eða vel haldinn og ég hélt á næstum allan hátt sem Calisthenics kallar eftir.
Eeeeen þetta er líka búið að vera sjúúúklega mikill lærdómur og það er það sem mig langar helst að miðla því ég trúi að „nútímamaðurinn/konan“ geti haft gagn af þeim lexíum sem ég hef fengið í andlitið á mér eins og blautar tuskur síðustu mánuði.
Ég mun því á næstu dögum fara yfir þætti eins og:
- Hvað eru grunnæfingar og árangur í Calisthenics
- Hvað þarf „venjulegt“ fólk sem t.d. situr mikið og vantar liðleika að gera til að eiga séns að ná árangri á því sviði og hverjar eru ákveðnar lykilhættur af lífstíl nútímamannsins.
- Af hverju er þetta tryllt
- Hvernig er líkaminn uppbyggður á lykil sviðum og hvað þarf að virkja og hvernig til að ná árangri þarna (spoiler: ég er ennþá búinn að ná mjög litlum árangri þannig að þetta verður að mestu það sem ég hef lært með því að mistakast en minna það sem ég hef masterað).
- „Life Hacks“ sem snúa að þessu.
Með nördakveðju elsku nördavinir (því þetta verður nördaferðalag)
Tryggvi Hjaltasson

