Laugardagur 30. september 2023

Dýrin í Hálsaskógi mæta í netleikhús LK og VF

22.03.2020 kl 12:00

Leikfélag Keflavíkur og Víkurfréttir hafa tekið höndum saman í að stytta Suðurnesjamönnum og öðrum stundir á þessum fordæmalausu tímum heimsfaraldurs COVID-19. Í sameiningu setjum við upp leikhús á netinu og sýnum valdar sýningar frá Leikfélagi Keflavíkur.

Fyrsta sýningin verður á morgun, sunnudaginn 22. mars, þegar Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjorn Egner í leikstjórn Gunnars Helgasonar verða sýnd. Sýningin hefst kl. 12:00 á hádegi og verður streymt á Facebook-síðu Víkurfrétta.

Næsta sýning sem send verður út í NETLEIKHÚSINU verður svo föstudagskvöldið 27. mars þegar Mystery Boy verður sýnt. Verkið var verðlaunað sem áhugaleiksýning ársins hjá Þjóðleikhúsinu. Höfundur er Smári Guðmundsson en uppsetningin var í leikstjórn Jóels Sæmundssonar.

Sunnudagskvöldið 29. mars verður svo Killer Joe. Höfundur er Tracy Letts, þýðandi Stefán Baldursson en leikstjóri var Davíð Guðbrandsson.

Greint er frá þessu á vikurfrettum.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is