Tígull hafði samband við bæinn til að fá upplýsingar um hvernig gengi að finna húsnæði fyrir dýralæknaþjónustuna sem kemur reglulega til Vestmannaeyja
Ólafur Snorrason sagði að bærinn hafi verið þeim innan handar með að finna húsnæði en því miður hefur það ekki gengið upp eftir að þau misstu aðstöðuna síðast.
Það þarf að vera lágmarks aðstaða þannig að ef einhver veit um einhvern smá krók sem þau geta nýtt eru allar ábendingar vel þegnar. Hægt er að hafa samband við Umhverfis- og framkvæmdasvið eða Pál hjá dýralæknaþjónustunni ef fólk hefur einhverjar hugmyndir sagði Ólafur að lokum.

