Miðvikudagur 7. júní 2023

Dýpið í Landeyjahöfn er óvenju gott

04.02.2020

Vegagerðin hefur samið við danska dýpkunarfyrirtækið Rohde Nielsen A/S um dýpkun í Landeyjahöfn í febrúar og mars.

Samningurinn gildir um dýpkun frá 15. febrúar út marsmánuð þegar umsamin vordýpkun tekur við.

Björgun ehf sinnir þeirri dýpkun samkvæmt núverandi samningi um vor- og haust dýpkanir í Landeyjahöfn.

Rohde Nielsen A/S mun nota dýpkunarskipið Trud R við dýpkunina í Landeyjahöfn. Um er að ræða tilraunaverkefni því beitt verður aðeins öðruvísi aðferðum en hingað til og verður áhugavert að sjá hvort það skilar betri árangri.

Staða dýpis í Landeyjahöfn er hinsvegar óvenju góð miðað við árstíma og reynslu liðinna ára. Þá hefur veður og sjólag heimilað siglingar í Landeyjahöfn síðustu daga.

En nú skiptir sköpum að nýja skipið á mun auðveldara með siglingar í Landeyjahöfn og ljóst að nýi Herjólfur hefur siglt mun oftar til hafnarinnar en Herjólfur III hefði getað.

Greint er frá þessu á vef Vegagerðarinar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is