Djúsí botn sem svíkur engan pizzuáhugamann og það besta er hvað það er einfalt að gera botninn.
Hráefni:
Innihald í einn botn eða 4 litlar:
-1 bolli hveiti / 140gr
-1 bolli hreint skyr / 230gr
-1 tsk lyftiduft / 5gr
Aðferð:
Hægt er að fá 4 litlar pizzur úr uppskriftinni en það er líka hægt að gera eina stóra. Það væri því tilvalið að tvöfalda uppskriftina til að fá tvær stórar pizzur í kvöldmat fyir 4.
Allt sett saman í skál og hnoðað saman, þægilegast er að nota hrærivélina í þetta en það er líka hægt að hræra þetta í höndunum. Fletja út og setja á bökunarpappír.
Það er gott að stinga nokkur göt með gaffli í hverja pizzu fyrir bökun svo þær blási ekki mikið út eins og pítubrauðin.
Betra að baka botnana fyrst í 15-18 mín við 180 gráður og setja svo áleggið á og baka aftur í um 8-10 mín á sama hita. En það er líka í góðu lagi að setja áleggið beint á og baka þá í 18-20 mín. Endarnir verða aðeins meira krispí ef botninn er bakaður á undan.
Uppskrift og mynd fengin frá helgamagga.is
Hér má finna fleiri girnilegar uppskriftir frá Helgu