Miðvikudaginn 19. apríl dimmiteraði stór hluti útskriftarhóps vorannar Framhaldsskólans Í Vestmannaeyjum. Rúmlega 20 nemendur sem munu útskrifast af 6 brautum.
„Við skemmtum okkur mikið í félagsskap hvors annars og verður þessi dagur að sjálfsögðu eftirminnlegur í okkar lífi.
Við byrjuðum daginn á að fá okkur morgunmat saman í Vigtinni, fengum rútufar upp í Framhaldsskóla og heilsuðum upp á fólkið þar. Eftir það heilsuðum við upp á kennara og nemendur í Barnaskólanum og héldum niður í kró. Kennarar Framhaldsskólans buðu okkur svo í hádegismat með sér á Tanganum og þar tók við skemmtilegur ratleikur. Þegar ratleikurinn kláraðist fórum við í Zumba hjá Ernu Sif í Hressó, sem var einnig afar skemmtilegt.
Við fengum okkur svo kvöldmat á Gott og skemmtum okkur vel það sem eftir var af kvöldinu, segir Guðbjörg Sól Sindradóttir formaður nemendafélags FÍV.“




