Desembertónleikum ÍBV frestað til 5. janúar
Kæru vinir.
Því miður þarf að fresta Desembertónleikum ÍBV, bæði krakka- og kvöldtónleikum, sem áttu að vera 22. des nk.
Ástæðan er sú að Jón Jónsson er kominn í sóttkví.
Þau sem hafa keypt miða munu fá tölvupóst frá Tix vegna þessa.
Ný dagsetning hefur verið fundin og munu tónleikarnir, bæði krakka- og kvöldtónleikar, fara fram þann 5. janúar á sama tíma á sama stað og áður hafði verið auglýst, 16.00 og 20.00 í Höllinni.
Við þökkum tillitsemina á þessum skrýtnu tímum sem erfitt er að ráða við.
Gleðileg jól og áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!