30.06.2020
Davíð Egilsson yfirlæknir á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum er nýr svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum.
Daví lærði læknisfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2010 og fékk almennt lækningaleyfi hér á landi 2011. Hann starfaði í kjölfarið á Slysa- og bráðadeild LSH en hélt síðan til Svíþjóðar í sérfræðinám sem hann kláraði árið 2013. Eftir það stundað hann nám í heimilislækningum við heilsugæsluna í Åhus og sjúkrahúsinu í Kristianstad í Svíþjóð og fékk þar sérfræðileyfi í apríl 2018. Eftir það hélt hann heim til Íslands og er nú eins og fyrr segir yfirlæknir á heilsugæslustöð HSU í Vestmannaeyjum.
Á Suðurlandi eru nú fjórir svæðislæknar sóttvarna sem heyra undir Elínu Freyju Hauksdóttur umdæmislækni sóttvarna á Suðurlandi og yfirlækni á Höfn. Þeir eru auk Davíðs, Björn G. S. Björnsson yfirlæknir í Rangárþingi, Sigurjón Kristinsson yfirlæknir í Laugarási og Ómar Ragnarsson yfirlæknir í Hveragerði og Þorlákshöfn.
Davíð eru færðar hamingjuóskir með nýja titilinn.