Ísfisktogarinn Dala-Rafn VE varð fyrir óhappi í gærkvöldi þegar skipið sigldi á Elliðaey.
Tígull náði tali af Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra Ísfélags Vestmannaeyja nú í morgunsárið. Eyþór sagði að ekki væri hægt að segja mikið um slysið að svo stöddu en allir eru fegnir að ekki fór verr og skipið hafi getað sigld án aðstoðar í höfn eftir áreksturinn.
Tígull fékk ábendingar um að einn maður um borð hafi slasast við árekturinn með þeim afleiðingum að handleggsbrotna og er hann á leiðinni til Reykjavíkur í aðgerð.
En að sjálfsögðu var mönnum brugðið. En skipverjar voru við þrif á skipunu og var skipið á reki við Elliðaey þegar óhappið átti sér stað. Eyþór segir að lokum að verið sé að fara yfir málsatvik.





