05.06.2020
Dagurinn í dag byrjar á opna Sjómannadagsmóti Ísfélags Vestmannaeyja í golfi fyrsti rástími er kl 08:00 góða skemmtun golfarar.
Í Einarsstofu er málverkasýning – Sjór og sjómennska, Hvíta húsið er með sjávarútvegurinn fyrr og nú kl 14-18, svo er opið í Sagnheimum, byggðarsafni og einnig náttúrugripasafninu við Heiðarveg.
Rikki Zoega opnar málverkasýningu sína Flottir tengadasynir og úteyjar kl 18:00 á Skipasandi.
Ölstofan The Brothers Brewery er opin 16-23 og Lundinn er opin frá 16 og þar til Víðir leyfir ( 23:00 )
Forsíðumyndina á Matthilda Maria Eyvindsdóttir Tórshamar en hún saumar sýnar myndir – ótrúlegt handverk sem er meðal annars er til sýnis í Hvíta húsinu við Strandveg. Hér eru nokkrar myndir til viðbótar sem Matthilda hefur saumað.