03.05.2020
Daði og Gagnamagnið bar í gær sigur úr býtum með lag sitt „Think About Things” í úrslitakeppni Eurojury 2020 en eins og allir vita varð ekkert að keppninni í ár vegna Covid-19.
Öll Eurovision framlög þessa árs tóku þátt í tveimur undankeppnum og 26 þeirra spiluð á úrslitakvöldinu sem fram fór á föstudaginn. Svo var valið sett í hendur aðdáenda og 180 manna fagdómnefndar.

Think About Things var talið mjög sigurstranglegt í söngvakeppninni sem átti að fara fram nú í maí. Lagið hefur vakið gríðarlega athygli, bæði hér heima og út um allan heim og hefur myndbandið fengið rúmlega 6,7 milljón spilanir á streymisveitunni Youtube.
Eurojury óskar Daða og Gagnamagninu til hamingju á Twitter og er það ljóst að Ísland hefur unnið Eurovision í fyrsta skipti!
Greint er frá þessu inn á vefnum Albumm.is