Matey Sjávarréttahátíðin verður haldin dagana 7-10. september þar sem veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman og vekja athygli á menningararfleiðinni og fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum og bjóða upp margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni úr Eyjum. Gestakokkar verða á veitingastöðunum en á veitingastaðnum GOTT verður Chris Golding.
Hægt er að bóka borð á GOTT HÉR!
„Chris hóf feril sinn aðeins fimmtán ára gamall, á japanska veitingastaðnum í hverfinu sem hann bjó, við uppvask og að aðstoða kokkinn um helgar. Þegar hann lauk skóla hóf hann störf sem nemi hjá Marco Pierre Whites, á franska Michelinstjörnu veitingastaðnum „Mirrabelle“ í Mayfair í London þar sem hann starfaði í þrjú ár.
Í kjölfarið uppgötvaði Chris ást sína á asísku bragði og hráefnum og tók við stöðu hjá Nobu Berkeley. Seinna starfaði Chris í þrjú ár sem aðstoðaryfirkokkur hjá David Thompsons og Thai veitingastað hans „Nahm“ sem var Michelin vottaður veitingastaður frá stofnun hans.
Chris tók síðar við umsjón á hinum margrómaða japanska veitingastað „Dinings“ í Tel Aviv, Ísrael. Síðast hefur hann verið yfirkokkur á Pantechnicon í London sem byggir á norrænni og japanskri hugmyndafræði. Pantechnicon hýsir fjóra veitingastaði; Eldr, Sachi, Roof Garde og Cafe Kitsuné, allir með áhrifum frá Skandinaviú og Japan. Pantechnicon hefur vakið mikla eftirtekt í London, og skal engan undra.

