Aðgengi á Íslandi er oft mjög takmarkandi fyrir hreyfihamlaða. Því er mikilvægt að koma upp römpum eða tryggja aðgengi með öðrum hætti. Ramparnir geta verið jafn misjafnir og þeir eru margir — og þeir eiga svo sannarlega að vera margir.
Liðsmenn hjá römpum upp Ísland eru mættir til Vestmannaeyja og hófust strax handa. Alls eru níu verkefni skráð hjá þeim hér í Vestmannaeyjum. Fyrstu ramparnir sem fara upp í dag eru hjá Viktori Rakara og Leturstofunni.
Það verður gaman að sjá útkomuna hjá þeim, við hjá Leturstofunni tókum eina fyrirmynd, þið takið svo rúnt um bæinn og takið verkin út hjá þessum flottu starfsmönnum.
Oft þarf ekki annað en að leysa aðgengi upp eina tröppu eða yfir háan þröskuld með einföldum hætti. Með sameiginlega átaki þjónustuaðila, verktaka og yfirvalda á þetta ekki að vera mikið mál — og með því stuðlum við að bættu umhverfi og betra aðgengi á Íslandi.




