Þriðjudagur 10. nóvember 2026

Byltingarkennd stígvél

Í belgíska þorpinu Kluisbergen í Belgíu eru framleidd stígvél sem Belgarnir hafa lagt sál og hjarta í

Undir merkjum Bekina Boots, og allar götur síðan 1962, hafa þeir unnið hörðum höndum að þróun skóbúnaðar er tæki öðrum fram sem sjómönnum býðst. Við ætlum ekki að fullyrða að þessu marki hafi verið náð, það verða menn að reyna á eigin skinni – eða öllu heldur fótum – en því verður vart neitað að fáir komast með tærnar þar sem Belgarnir hafa hælana í þessum efnum. Séu einhverjir í vafa hér um er þeim bent á að skoða hin nýju StepliteXStormgrip-Bekina stígvél.

Fjögurra ára rannsóknarvinna liggur að baki stígvélunum. Aðstæður fiskimanna vítt og breitt um heiminn voru kannaðar og fiskimenn, fiskvinnslufólk, fólk í fiskeldi og kaupmenn, allir þessir og fleiri til voru spurðir í þaula um hvað eina er laut að vinnuaðstæðum og fótabúnaði.
Til að draga saman svör sjómanna má segja að þau hafi kristallast í fimm atriðum eða ábendingum um hvað betur mætti fara.

 

(1) Þilför væru oft ansi hál og hætt við að mönnum skrikaði þar fótur.
(2) Mörg stígvél væru þannig úr garði gerð að net og bönd ættu tiltölulega auðvelt með að krækjast í þau, jafnvel með þeim afleiðingum að sjómaðurinn færi fyrir borð með veiðarfærinu.
(3) Stígvél væru oft þung og óþægileg.
(4) Margir sjómenn kjósa eða eru hreinlega skyldaðir til að vera í stígvélum með hörðum öryggistám. Gallinn við þennan skóbúnað er að hann þolir illa sjávarseltuna og öryggið á tánni – sem oftast er úr stáli – vill detta af eftir fáeina mánuði á sjó.
(5) Fiskveiðar í Norðurhöfum eru kuldadjobb en margir sjómenn sem starfsmenn Bekina ræddu við kvörtuðu undan fótakulda. Stígvélabotninn væri svo illa einangraður að fyrr en varir væru þeir orðnir ískaldir á tánum.

Þetta eru þau fimm meginatriði sem starfsmenn Bekina Boots tókust á við að leysa. Í heil fjögur ár glímdu þeir við vandann, ekki aðeins á vel búinni rannsóknarstofu fyrirtækisins heldur var yfir 200 sjómönnum boðið að reyna frumgerð stígvélanna – meðal annars var leitað til íslenskra sjómanna – og þeir beðnir að segja kosti og galla á skóbúnaðinum.
Afraksturinn leit dagsins ljós í fyrra; StepliteXStormgrip-stígvél gerð úr Neotane sem er sérstök blanda sem sérfræðingar Bekina þróuðu úr pólýúretani.
Við skulum ekki hætta okkur frekar út í tæknina sem felst í Neotane en við finnum strax að stígvélin eru óvenju létt og hlý, stöðug á hálu yfirborði og sitja vel á fæti.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search