Laugardagur 17. október 2026

Búin að vera góð ýsuveiði í febrúarmánuði

Vestmannaey og Bergey lönduðu fullfermi í Eyjum á sunnudaginn síðstliðinn.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey,sagði að túrinn hefði gengið vel. ”Við vorum að veiðum á Höfðanum, í Breiðamerkurdýpi og enduðum síðan á Pétursey. Aflinn var langmest ýsa. Veður var heldur slæmt til að byrja með en lagaðist síðan,” sagði Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var einnig ánægður með veiðiferðina. ”Þetta var um tveir og hálfur sólarhringur þannig að það er ekki hægt að kvarta. Við byrjuðum á Ingólfshöfðanum og tókum síðan eitt hol á Víkinni. Aflinn var mest ýsa og það er búin að vera góð ýsuveiði í febrúarmánuði. Það er alltaf að koma loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala,” sagði Birgir Þór.

Vestmannaey og Bergey héldu til veiða á ný miðnætti á sunnudaginn síðastliðinn.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search