Framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og fræðslusviðs upplýsti fjölskyldu- ot tómstundaráð um stöðuna á móttöku flóttafólks frá Úkraínu til Vestmannaeyja. Búið er að virkja starfshóp á vegum Vestmannaeyjabæjar sem hefur það hlutverk að aðstoða flóttafólk við að komast inn í samfélagið í Eyjum. Í umræddum starfshópi eru Anna Rós Hallgrímsdóttir, Drífa Gunnarsdóttir, Klaudia Beata Wanecka og Lára Konráðsdóttir sem jafnframt er tengiliður Vestmannaeyjabæjar við flóttamannateymi Fjölmenningasetursins. Verið er að afla upplýsinga og samræma verklag samhliða því sem verið er að aðstoða einstaklinga sem þegar eru komnir til Vestmannaeyja eða væntanlegir á næstunni.
Fimmtudagur 8. október 2026

