23.06.2020
Það er alltaf gaman að fylgjast með eyjafólkinu okkar. Eyjadaman Brynja Þrastardóttir hefur hafið störf í eftirliti Kauphallarinnar.
Brynja er við það að ljúka tveimur mastersgráðum frá Háskóla Íslands, annarri í fjármálahagfræði og hinni í alþjóðasamskiptum. Hún lauk B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá sama skóla árið 2018. Meðfram námi var Brynja flugfreyja hjá WOW Air auk þess sem hún var í starfsnámi hjá fastanefnd Íslands í Genf haustið 2019 og nú í vor hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nasdaq á Íslandi.
Við óskum Brynju til hamingju.
