Sunnudagur 11. október 2026

Brugghúsfrumvarpið samþykkt

Frum­varp Jóns Gunn­ars­son­ar dóms­málaráðherra um breyt­ingu á áfeng­is­lög­um, um sölu áfeng­is á fram­leiðslu­stað, eða brugg­húsa­frum­varpið svo­kallaða, sem miðar að því að smærri áfeng­is­fram­leiðend­um verði gert kleift að selja áfengt öl í smá­sölu á fram­leiðslu­stað, var samþykkt á Alþingi í gær­kvöldi.

Frum­varpið var samþykkt með 54 sam­hljóð at­kvæðum og öðlast gildi 1. júlí.

Jón sagði frum­varpið marka tíma­mót og fagnaði hann sam­stöðu í þing­inu um frum­varpið.

Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­kona Sjálf­stæðis­flokks­ins, hafði áður sagt að halda ætti dag­inn hátíðleg­an:

„Ég held að af þessu til­efni ætt­um við að ákveða að 15. júní, eða 16. júní eft­ir at­vik­um, verði hald­inn hátíðleg­ur, eins og við höf­um haldið upp á bjórdag­inn frá 1. mars 1988, og kalla hann brugg­hús­dag­inn.“

Mbl.is greindi fyrst frá.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search