Það styttist í Þjóðhátíð í Eyjum og eftirvæntingin að mælast í hæstu hæðum
Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri og heldur áfram að hlaða utan á sig einstöku tónlistarfólki.
Brimnes, Merkúr, Sara og Una, XXX Rottweiler, JóiPéxKróli, Sprite Zero Klan, Hipsumhaps og Háski.
Einnig er dagskrá kvöldvökunnar á sunnudagskvöldinu fullmótuð / Halldór Gunnar, Fjallabróðir með meiru, stýrir henni að venju ásamt Sverri Bergmann og í hópinn bætast Ragga Gísla, Pálmi Gunnars, Guðrún Árný og Klara Elías ásamt Jóhönnu Guðrúnu sem var búið að tilkynna.
Dagskráin á Þjóðhátíð:
Bríet – Aron Can – FM95Blö – DJ Muscleboy – Emmsjé Gauti – Aldamóta tónleikarnir – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – Bandmenn & Stuðlabandið – Brimnes – Merkúr – Sara og Una.


