Þriðjudagur 5. desember 2023
Tói Vídó

Breyttar reglur um takmarkanir á samkomum frá 4. maí

21.04.2020

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi

Unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Unnt verður að halda óskerta kennslu og vistun barna

Í auglýsingunni felst að reglur um fjöldatakmörk og um tveggja metra nálægðarmörk munu frá gildistöku hennar ekki eiga við um nemendur í starfsemi leik- og grunnskóla. Þannig verður því unnt að halda óskertri kennslu og vistun barna. Sama á við varðandi börnin í starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og annarri lögbundinni þjónustu á leik- og grunnskólastigi. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar almenningi en skólasundkennsla verður heimil.

Áform stjórnvalda um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi voru kynntar á fréttamannafundi forsætis- heilbrigðis- og dómsmálaráðherra 14. apríl síðastliðinn. Með auglýsingunni sem birt var í dag eru breytingarnar nákvæmlega útfærðar. Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 19. apríl 2020, sem er viðbót við fyrri minnisblöð hans til heilbrigðisráðherra sem kynnt voru 14. apríl, er gott yfirlit yfir helstu breytingar sem auglýsingin hefur í för með sér varðandi skólastarf á öllum skólastigum, á íþróttastarf barna og fullorðinna o.fl.

Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að þegar líður að lokum maí verði skoðaðir möguleikar á að aflétta enn frekar takmörkunum á samkomum. Að því gefnu að ekkert standi slíkum breytingum fyrir þrifum verði stefnt að því að færa fjöldatakmarkanir úr 50 í 100 manns, opna sundlaugar og líkamsræktarstöðvar o.fl.

Það skal ítrekað að meðfylgjandi auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur ekki gildi fyrr en 4. maí næstkomandi. Frá sama tíma falla úr gildi núgildandi auglýsingar um takmörkun á samkomum og um takmörkun á skólastarfi.

Fylgiskjöl:

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is