Breyttar reglur um greiðslur fyrir þjónustu sjúkraþjálfara

31.10.2020

Heilbrigðisráðherra hefur framlengt til 31. desember næstkomandi reglugerð um greiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Einnig er gerð sú breyting frá gildandi reglugerð að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna meðferðar verður alfarið bundin því að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara starfandi í heilsugæslu þar sem fram kemur sjúkdómsgreining.

Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara rann út 12. janúar 2019. Til að tryggja sjúklingum áframhaldandi greiðsluþátttöku sjúkratrygginga, meðan unnið væri að nýjum samningi, setti heilbrigðisráðherra reglugerð nr. 1364/2019 sem kveður á um endurgreiðslu kostnaðar fyrir sjúkraþjálfun á grundvelli gjaldskrár sjúkratrygginga Íslands.

Samkvæmt gildandi reglugerð hefur forsenda fyrir endurgreiðslu sjúkratrygginga verið bundin því að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni þar sem fram kemur sjúkdómsgreining. Þó hefur verið heimilt að víkja frá þessu skilyrði vegna bráðameðferðar sem nemur allt að 6 skiptum á 12 mánaða tímabili. Með nýrri reglugerð sem tekur gildi 1. nóvember og gildir til loka þessa árs er sú breyting gerð að heimildarákvæði um bráðameðferðir án formlegrar beiðni gildir eingöngu þegar í hlut eiga sjúkraþjálfarar sem starfa samkvæmt samningi.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist binda vonir við að samningar náist sem fyrst milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúkraþjálfara. „Sjúkraþjálfun er mikilvæg heilbrigðisþjónusta sem þarf að tryggja með samningi sem er til þess fallinn að tryggja þeim sem á þurfa að halda jafnan aðgang að öruggri og góðri þjónustu sjúkraþjálfara í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is