HSU í Vestmannaeyjum ætla að reyna á nýtt fyrirkomulag varðandi bólusetningar.
Nýja fyrirkomulagið hefst á miðvikudaginn 19. janúar og gegnur þá út á að fólk skrái sig og verði gefinn upp tími til að mæta, ekki verður um opið hús eins og áður.
Miðvikudagur 19. janúar 2022 á heilsugæslustöðinni í Vestmannaeyjum.
Skráning í síma 432-2500.
Þetta fyrirkomulag er ætlað fyrir:
- Börn 12 ára og eldri sem ekki eru fullbólusett – athugið að börn 12 – 15 ára fá ekki örvunarskammt . Börn verða að mæta með foreldra/forráðamanni
- Þá sem ekki eru fullbólusettir, hafa fengið enga eða 1 bólusetningu
- Alla 16 ára og eldri sem óska eftir örvunarbólusetningu, en 5 mánuðir verða að hafa liðið frá síðustu bólusetningu
- Alla sem voru bólusettir með Janssen og eiga eftir að fá pfizer sem örvunarskammt .
- Þá sem fengið hafa covid og kjósa að fá örvunarskammt með pfizer. Athugið að 3 mánuðir verða að hafa liðið frá veikindum að örvunarskammti.
Pfizer
ATHUGIÐ!
- Ekki verða send út strikamerki.
- Að minnsta kosti ½ mánuður verður að líða á milli covid bólusetningar og annara bólusetninga.
- Hér mæta ekki börn yngri en 12 ára, þau þurfa barna-Pfizer skammt sem er veikari en það sem er í boði 19. janúar.

