Mánudagur 16. nóvember 2026

Breytt áætlun Herjólfs III

Herjólfur IV un sigla til Hafnarfjarðar í kvöld og fer í slipp á morgun mánudag. Herjólfur III mun því hefja áætlunarsiglingar sínar milli Eyja og lands í fyrramálið.
Áhöfn Herjólfs hefur og mun alltaf hafa það sem fyrsta kost að sigla til Landeyjahafnar ef kostur er á, en því miður hentar Herjólfur III illa til siglinga í höfnina að svo stöddu.

Það hefur orðið ljóst á seinustu dögum að ekki er unnt að halda sjö ferða áætlun til Landeyjahafnar. Að því sögðu hefur verið tekin ákvörðun um að breyta áætlun ferjunnar í fimm ferðir á meðan Herjólfur III siglir. Um leið og Herjólfur IV kemur úr slipp verður sjö ferða áætlun tekin upp aftur.

Helsta ástæða fyrir því að ekki er unnt að sigla fulla áætlun er að lestun og losun mun taka lengri tíma en á Herjólfi IV og taka mun lengri tíma en hún gerði þegar Herjólfur III var hér áður. Hlerar eru á bíldekki (öryggiskröfur) sem þurfa að vera í notkun öllum stundum sem tefur lestun og losun á bílum og frakt og er það breyting frá því Herjólfur III var hér síðast í áætlun.

Fyrirsjáanleiki og upplýsingagjöf er mikilvæg í rekstri Herjólfs ohf og munum við upplýsa okkar viðskiptavini vel um þessar breytingar og hafa samband við alla sem eiga nú þegar bókað á öðrum tímum.

Ef Herjólfur III siglir til Þorlákshafnar mun verða breytingar á seinni ferðum ferjunnar. Frá Eyjum væri brottför kl. 16:00 í staðinn fyrir kl. 17:00 og þar af leiðandi kl. 19:45 frá Þorlákshöfn í stað 20:45. Tímasetningar á fyrri ferðum haldast óbreyttar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search