Þriðjudagur 10. nóvember 2026

Breytingar varðandi afhendingu bóluefnis frá Pfizer – tafir á skömmtum til Íslands

15.12.2020

Áætlun Pfizer um afhendingu bóluefna hefur raskast og ljóst að færri skammtar koma til Íslands um áramót en samningar gerðu ráð fyrir. Miðað var við að Ísland fengi þá rúmlega 21.000 skammta en þeir verða um 10.000.

Í janúar og febrúar er von á um 17.500 skömmtum til viðbótar. Samtals dugir þetta bóluefni fyrir tæplega 14.000 manns. Nánari upplýsingar um afhendingu bóluefnis Pfizer á fyrsta ársfjórðungi næsta árs ættu að liggja fyrir á næstu dögum.

Auk samnings við Pfizer hefur Ísland lokið samningi við bóluefnaframleiðandann Astra Zeneca og samningsgerð við Janssen er á lokastigi. Samtals tryggja samningar við þessa framleiðendur auk Pfizer bóluefni fyrir 281.000 einstaklinga. Samningsgerð er einnig hafin við lyfjaframleiðandann Moderna.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search