16.03.2020
Stjórnendur og starfsfólk GRV hefur nú unnið að undirbúningi viðbragða við takmörkun á skólahaldi sem tekið hefur gildi vegna Covid-19 veirunnar. Ljóst er að starfsemi og þjónusta skólans verður með breyttu sniði næstu þrjár vikurnar. Allt skipulag skólahalds miðast að því að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum yfirvalda um samkomubann.
- Nemendur munu vera 4 kennslustundir á dag í skólanum, 3 klukkutíma. Nemendur verða aðeins í sínum bekk og munu mæta á misjöfnum tíma í skólann. Umsjónarkennari sér um alla kennslu og öll önnur kennsla fellur niður, sem og íþróttir, lotutímar, valáfangar o.fl.
- Umsjónarkennarar munu vera í góðu sambandi við sína nemendur og senda frekari upplýsingar til foreldra. Heimanám gæti aukist og þá sérstaklega á unglingastigi, þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með á Mentor.
Hér má sjá hvenær hver árgangur mætir og lýkur skóla.
Tími | Hópur | Inn/útgangur |
09:00-12:00 | 1. bekkur | vestur inngangur |
08:30-11:30 | 2. bekkur | vestur inngangur |
08:20-11:20 | 3. bekkur | niðri inngangur |
08:40-11.40 | 4. bekkur | niðri inngangur |
08:20-11:20 | 5. bekkur | miðstigs inngangur |
08:30-11:30 | 6. bekkur | miðstigs inngangur |
08:20-11:20 | 7. bekkur | norður inngangur |
11:00-13:55 | 8.bekkur | suður inngangur |
11:10-14:05 | 9. bekkur | norður inngangur |
11:20-14:15 | 10. bekkur | suður inngangur |
Það er mjög mikilvægt að virða tímasetningar og nemendur eiga að mæta á þeim tíma sem þeirra árgangur mætir, hvorki fyrr né seinna.
- Enginn hafragrautur, ávextir eða hádegismatur verður í boði. Nemendur mæta með nesti sem þeir borða í sínum umsjónarstofum. Matarkostnaður verður felldur niður þessa daga.
- Engir utanaðkomandi gestir mega koma inn í skólann, sem þýðir að foreldrar mega ekki koma inn í skólann og bendum við ykkur á að hafa samband við kennara eða stjórnendur í gegnum síma eða tölvupóst.
- Athugið að ef það kemur til mikilla forfalla kennara í skólanum, gæti þurft að senda einstaka bekki/árganga heim.
- Einnig ef það kemur til hegðunarvandkvæða sem ekki tekst að leysa í kennslustofu, verður hringt heim og foreldrar beðnir um að sækja nemandann.
- Það er mikilvægt að halda áfram að fara eftir tilmælum landlæknis. Nemendur með undirliggjandi sjúkdóma og flensueinkenni ættu að halda sig heima og fylgja áætlunum á Mentor.
Kveðja
Skólastjórnendur GRV.
Forsíðumynd Linda Bergmann