Búist er við gríðarlegri stemningu í kvöld þegar LOKSINS verður haldið Lundaball og hvað þá þegar Brandarar eiga í hlut. Það getur bara ekki klikkað. Við heyrðum í veislustjórum kvöldsins, þeim Þorbirnir Víglundssyni og Gunnari Friðfinnssyni. Þeir hafa fundað slitlaust síðustu vikur og komið saman glæsilegri skemmtidagskrá sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Hvenær héldu Brandarar síðast Lundaball?
Brandarar sáu síðast um ballið árið 2013 og var sagt eftir það ball að það hafi verið það allra flottasta sem haldið hefur verið. Við ætlum að toppa þetta í ár enda allir þyrstir í ball eftir að Lundaballi hafi verið frestað í tvígang út af fjandans Covidinu. Það ætti því enginn að láta þetta fram hjá sér fara.
Hvað eru margir félagsmenn í Brandi?
Virkir félagasmenn í Brandi telja um 35 manns.
Munið þið hvað eru mörg veiðifélög hér í Vestmannaeyjum ?
Það má segja að það séu átta starfandi veiðifélög í Eyjum. Fyrst ber að nefna Bjargveiðimannafélagið Brandur en það eru einnig starfandi félög í Elliðaey, Bjarnarey, Suðurey, Hellisey, Álsey, Ystakletti og svo Heimalandið.
Hvaða ár er Bjargveiðifélagið Brandur stofnað?
Bjargveiðifélagið Brandur er stofnað árið 1952. Og var það þá stofnað í kringum félagsskap manna sem stunduðu veiðar í eynni og byggðu þeir fyrsta veiðihúsið sama ár.
Eru konur í félaginu? Það eru um 35 (eigin)konur í félaginu sem eru virkir stuðningsfulltrúar karlana.
Hvað ætlið þið að bjóða upp á í skemmtun og mat? Skemmtun er að mestu í höndum Brandara sjálfra en við höfum að auki fengið úrval af öðrum skemmtikröftum og tónlistarfólki okkur til aðstoðar til að gera kvöldið ógleymanlegt. Einar Björn, ásamt sínu fólki hjá Einsa Kalda munu sjá um matinn sem verður ekki af verri endanum. Matseðillinn ber keim af villibráðakvöldi þar sem bæði fiskur og lundi fá góð skil. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á matseðlinum og svo verður hin margrómaða sjávarréttasúpa á miðnætti til að fólk hafi næga orku til að dansa af sér rassinn inn í nóttina þar sem hljómsveitin Kókos mun leika fyrir dansi.
Hjálmar, Tobbi, Gunnar, Siggi og Gunni.
Tobbi, Gunnar og Siggi Vídó.



