12.12.2020
Börn eru svo yndisleg og hreinskilin og segja nákvæmlega það sem þeim finnst. Það er alltaf gaman að fá þessa gorma í spjall. Við fengum nokkur börn til að svara nokkrum spurningum.
Þóra Elísa Gísladóttir

Hvað ertu gömul? 4 ára
Foreldrar: Lilja Björg og Gísli Geir
Af hverju elskarðu mömmu? Hún er uppáhalds mamma mín
Af hverju elskarðu pabba? Hann er uppáhalds pabbi minn.
Af hverju elskarðu ömmu? Hún er best
Af hverju elskarðu afa? Hann er bestur
Hvað viltu í jólagjöf? Barbie
Hvað eru jólasveinarnir margir? 10, 9 og 33
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Stekkjastaur
Í hverju ertu best? Hoppudýnunni
Friðrik Valur Friðriksson

Hvað ertu gamall? Bráðum 4 ára
Foreldrar: Vala sjúkrakona og Fiddi slökkvistjóri
Af hverju elskarðu mömmu? Af þvi ég elska mömmu hún er góð
Af hverju elskarðu pabba? Af þvi pabbi er góður
Af hverju elskarðu ömmu? Hún er góð
Af hverju elskarðu afa? Hann er góður og skemmtilegur
Hvað viltu í jólagjöf? Ég vil fá í pakkanum hund
Hvað eru jólasveinarnir margir? 10
Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? Allir góðir
Í hverju ertu bestur? Bestur við mömmu

