Þriðjudagur 5. desember 2023

Bólusetning verður langt komin í lok júní

Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna sem öll eru með markaðsleyfi og komin í notkun hér á landi.

Þetta er mun meira en áður var vænst. Mestu munar annars vegar um nýjan samning Evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbótar fyrri samningum. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukið magn bóluefna frá Pfizer á grundvelli nýs samnings Evrópusambandsins fyrir lok þessarar viku.  Einnig mun aukin framleiðslugeta AstraZeneca hafa áhrif. Alls verður rúmlega 280.000 einstaklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri. Vænta má bóluefna frá fleiri lyfjaframleiðendum á öðrum ársfjórðungi að því gefnu að þeim verði veitt markaðsleyfi á næstunni eins og að er stefnt.

Fleiri bóluefni í vændum á öðrum ársfjórðungi

Gert er ráð fyrir að Evrópska lyfjastofnunin leggi mat á bóluefni Janssen og Curevac innan skamms en mat hennar er forsenda markaðsleyfis. Áætlað er að afhending þessara bóluefna geti hafist á öðrum fjórðungi ársins en ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar frá framleiðendunum um magn. Að auki er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að leggja lokahönd á samning um kaup á bóluefni frá Novavax sem Ísland getur fengið hlutdeild í á sömu forsendum og gilt hafa um aðra samninga Evrópusamstarfsins.

Bólusetningardagatal í smíðum

Sóttvarnalæknir vinnur að gerð bólusetningardagatals á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga um afhendingu bóluefna á næstu mánuðum. Þar verða birtar upplýsingar um forgangshópa og hvenær einstaklingar í hverjum hópi geta vænst þess að fá boð um bólusetningu. Þessum upplýsingum er fyrst og fremst ætlað að veita fólki grófar upplýsingar um framvindu bólusetninga gegn COVID-19 hér á landi. Upplýsingarnar verða birtar með fyrirvara um mögulegar breytingar á áætlunum um afhendingu bóluefna. Benda má á bólusetningardagatal líkt og hér um ræðir sem birt hefur verið á vef Sundhedsstyrelsen, sem er dönsk systurstofnun embættis landlæknis og einnig sambærilegt dagatal á vef systurstofnun embættis landlæknis í Noregi.

Greint er frá þessu á vef Heilbrigðisráðuneytisins.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is