Bólusetning forgangshópa gegn árlegri inflúensu er hafin um allt land. Embætti landlæknis staðfesti í síðustu viku að bólusetning væri hafin fyrir alla forgangshópa, og bóluefnið sjálft er þeim að kostnaðarlausu.
Hverjir eru í forgangi?
Sóttvarnalæknir mælist til þess að eftirtaldir hópar fái bólusetningu fyrst:
– allir 60 ára og eldri
– börn yngri en fimm ára, sem orðin eru sex mánaða
– börn og fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- eða lifrarsjúkdóma, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdóma eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma
– barnshafandi konur
– heilbrigðisstarfsfólk sem annast fólk í þessum áhættuhópum
– fólk sem vegna starfs síns er í hættu á að smitast bæði af árlegri inflúensu og fuglainflúensu
Forgangshópar greiða ekki fyrir bóluefnið, en komugjald á heilsugæslu fer eftir gildandi reglugerð. Aðrir fá væntanlega bólusetningu í nóvember, samkvæmt embætti landlæknis.
Bólusetning í Eyjum
Í Vestmannaeyjum fer bólusetning fram á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) að Sólhlíð 10. Tímar eru bókaðir í síma 432 2500 á opnunartíma heilsugæslunnar, sem er opin virka daga kl. 8–15.
Færri með inflúensu milli vikna
Samkvæmt nýjustu vikuskýrslu landlæknis um öndunarfærasýkingar, sem nær til viku 43 (19.–25. október), greindust færri með inflúensu en vikurnar á undan og tæplega helmingi færri lágu inni á sjúkrahúsi vegna hennar en vikuna áður. RS-veira hafði enn ekki greinst í vetur.
Sóttvarnalæknir minnir á grunnráðin: að vera heima meðan einkenni eru og þar til maður er hitalaus í sólarhring, fara sérstaklega varlega í kringum viðkvæma, hylja munn og nef við hósta og hnerra, þvo hendur oft og vel og lofta út í sameiginlegum rýmum.
Þeir sem eru óvissir um hvort þeir eigi að fá bólusetningu geta leitað til heilsugæslunnar.

