Það er blíða og þokkaleg veiði á Kolmunnamiðunum suður af Færeyjum segir Sveinn Magnússon sem er einn af áhöfn Ísleifs VE
Þegar Tígull heyrði í Svenna um klukkan 23 í gærkvöldi voru þeir að hífa í annað sinn, í fyrsta hali kom 590 tonn og í því sem var að klárast þegar við heyrðum í þeim kom 370 tonn. Við fengum nokkrar myndir hjá Svenna til að sýna ykkur veðurblíðuna á miðunum.



