Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hér í Eyjum taka þátt í Bleika deginum og sýna þannig stuðning við konur og krabbamein. Bleik stemmning er víða um bæinn í dag sem er frábært. Einnig verða flestar verslanir með kvöldopnun, opið til 22:00. Margar verslanir ætla sér að gefa hluta af sölu dagsins til Krabbavarnar. Krabbavörn Vestmannaeyja verða með bás á bárugötu þar sem þær ætla að selja allar fallegu bleiku tuskurnar og heitt súkkulaði. Ljúfir tónar munu hljóma frá tónlistarfólkinu okkar hér í Eyjum. Pítsagerðin bakar bleikar pizzur í dag í tilefni dagsins. Hér má sjá glæsilegt starfsfólk Eyjablikk í vinnufötum dagsins. Frábært að sjá þessa samstöðu!
