Bókasafn Vestmannaeyja tekur þátt í Bleikum október með laugardagsopnunum í október. Fyrsta opnunin er í dag, laugardaginn 3. október, og þá verður bleika slaufan perluð.
Safnið er opið frá klukkan 12 til 15 og er öllum boðið að koma og perla bleiku slaufuna. Perlur, perlumót og straujárn verða á staðnum, svo það eina sem þarf er að mæta.
Krabbavörn með varning til sölu
Félagsfólk frá Krabbavörn Vestmannaeyja verður einnig á staðnum með fallegan varning til sölu.
Bókasafnið hvetur alla til að mæta í bleiku og sýna stuðning við Bleikan október. Þetta er notaleg stund fyrir alla fjölskylduna.
Laugardagsopnanir verða á safninu í allan október frá kl. 12 til 15.

