Síðasti trébáturinn sem smíðaður var í Eyjum gæti verið á förum frá Eyjum. Minjastofnun Íslands vill auglýsa Blátind VE 21 áður en hann er tekin af fornminjaskrá. Framkvæmda- og hafnarráð hefur samþykkt að það fé sem ætlað var í förgun fylgi bátnum, ef finnist aðili sem vill gera hann upp.
Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 30. september. Þar kom fram að hafnarstjóri og formaður ráðsins hefðu fundað með fulltrúum Minjastofnunar. Áður hafði borist bréf frá stofnuninni þess efnis að hún vildi byrja á því að auglýsa bátinn áður en hann yrði tekinn af fornminjaskrá. Minjastofnun óskaði jafnframt eftir því að bátnum fylgdi það fé sem ráðgert var að færi í förgun hans.
Ráðið bókaði:
„Ráðið samþykkir að þeir fjármunir sem áætlaðir hafa verið til förgunar á Blátindi VE fylgi bátnum, komi fram aðili sem er reiðubúinn að taka við honum og flytja það frá Vestmannaeyjum til uppgerðar. Ráðið leggur jafnframt áherslu á að niðurstaða liggi fyrir í málinu á næsta fundi ráðsins.“
Frá plássleysi til friðunar
Málið hófst á fundi ráðsins 8. júlí. Þar var rætt um mikið plássleysi á hafnarsvæðinu og hafnarstjóra falið að kanna kostnað við að farga Blátindi og upplýsa Minjastofnun um áformin. Stofnunin svaraði með tölvupósti og benti á að Blátindur væri friðaður samkvæmt 3. grein laga um menningarminjar.
Á fundi 27. júlí voru lögð fram tvö ástandsmöt á bátnum.
Guðmundur Guðlaugsson (2020): Sagði að „nánast allt fyrir ofan dekkbita“ væri ónýtt. Hann mat að kostnaður við að gera bátinn sýningarhæfan yrði ekki undir 100 milljónum króna og um tvöfalt meiri ef hann ætti að verða haffær.
Ágúst Österby (2021): Sá „bát með mjög heillegan skrokk“ en sagði dekkið og flest ofan þilja mjög illa farið. Hann mat að kostnaður við að gera bátinn haffæran yrði um 90 milljónir króna.
Ráðið samþykkti þá að óska eftir því við Minjastofnun að friðun Blátinds yrði aflétt svo heimilt yrði að farga honum. Rökin voru þau að kostnaður við uppgerð væri slíkur að „það sé ekki forsvaranlegt að hafnarsjóður Vestmannaeyja ráðist í verkið“.
Smíðaður í Eyjum árið 1947
Blátindur var smíðaður hjá Dráttarbraut Vestmannaeyja árið 1947 og var Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari. Hann er 45 rúmlestir, sléttsúðaður eikarbátur, um 18,4 metrar á lengd. Báturinn var smíðaður á tímum nýsköpunar eftir stríð. Þegar honum var hleypt af stokkunum var hann einn stærsti og glæsilegasti fiskibátur Eyjaflotans.
Blátindur var gerður út á vetrarvertíð og síld. Sumrin 1950 og 1951 var hann líka varðbátur Landhelgisgæslunnar í Faxaflóa, búinn fallbyssu.
Á flakki um landið og heim aftur
Blátindur var gerður út frá Eyjum til 1959 og eftir það frá ýmsum höfnum á Vestur- og Norðurlandi. Lengst var hann á Sauðárkróki undir nafninu Blátindur SK 88. Árið 1990 var hann seldur kvótalaus til Ólafsfjarðar.
Þar fannst hann sumarið 1992 og árið 1993 flutti Landhelgisgæslan hann heim til Eyja. Áhugamannafélag var stofnað um endurbyggingu hans haustið 2001 og bærinn tók síðan við bátnum. Vorið 2018 var hann fluttur út að Skansinum. Þann 14. febrúar 2020 slitnaði hann upp í óveðri og sökk í höfninni, og síðan hefur framtíð hans verið óljós.
Af hverju er hann friðaður?
Samkvæmt lögum um menningarminjar nr. 80/2012 teljast skip og bátar smíðuð fyrir 1950 til forngripa. Því má ekki farga þeim nema með leyfi Minjastofnunar. Blátindur er líka eini báturinn sem eftir er af þeim tugum trébáta sem smíðaðir voru í Eyjum á 20. öld. Hann er jafnframt talinn eini vélbátur síns tíma sem hefur varðveist nær óbreyttur, með upprunalegu stýrishúsi.
Nú ræðst hvort einhver gefur sig fram til að taka við Blátindi og gera hann upp utan Eyja. Ef enginn gerir það er líklegt að friðun verði aflétt og bátnum fargað. Niðurstaða á að liggja fyrir á næsta fundi ráðsins.
Ljósmynd: Gunnar Ingi.

