Hráefni:
1 kg svínalund
2 msk salt
1 stk Stella Artois bjór
Steikarkrydd
Caj P Hickory grillolía
Grænmetisspjót
2 stk Ferskur maís skorinn niður
1 stk Rauðlaukur
1 stk Rauð papríka
10 stk sveppir
Köld sósa
150 g majónes
150 g sýrður rjómi
2 stk hvítlauksrif
salt og pipar eftir smekk
TABASCO® sósa eftir smekk
Aðferð:
Sinuhreinsið svínalundina og þerrið hana vel.
Saltið og nuddið saltinu vel inn í vöðvann.
Setjið í eldfast mót/annað ílát og hellið bjórnum yfir svo hann þeki lundirnar.
Plastið vel og leyfið að marinerast yfir nótt helst (nokkrar klukkustundir duga samt til).
Takið lundirnar úr bjórleginum og þerrið að nýju.
Kryddið með góðu steikarkryddi og setjið á vel heitt grill.
Penslið nokkrum sinnum með Caj P grillolíu á meðan kjötið eldast. Takið af grillinu þegar kjarnhiti er 65° og leyfið kjötinu að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið skerið það niður.
Berið fram með bökuðum kartöflum, grænmetisspjótum (sjá uppskrift hér að neðan) og kaldri sósu (sjá uppskrift hér að neðan).
Grænmetisspjót
Skerið grænmetið niður og raðið á grillspjót.
Penslið með Caj P og grillið á meðalháum hita í um 15 mínútur, snúið reglulega.
Köld sósa
Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun

