Inn á stuðningsmannaspjalli ÍBV er greint frá því að stuðningsmönnum ÍBV verður boðið í rútu og Herjólf á leik gegn Leikni R sem fer fram næstkomandi sunnudag. Lagt verður af stað klukkan 09:30 með Herjólfi og til baka heim með Herjólfi klukkan 18:15.
Eina sem þarf að gera er að senda póst á knattspyrna@ibv.is, nafn og kennitölu en þetta þarf að gera fyrir klukkan 13:00 á morgun föstudag.
ÁFRAM ÍBV.

