Í ár var það húsið Birkihlíð 4 sem var valið úr 21 tilnefningu sem jólahús 2021 og hlaut yfirburða kosningu.
Húsráðendur að Birkihlíð 4 eru þau Anna Rós Hallgrímsdóttir og Páll Þ. Hjarðar. Sigurjón Ingi Ingólfsson frá HS veitum færði þeim áritaðann veggskjöld og peningainneign upp í orkureikninginn og Arnar Andersen færði heimilisfólkinu kertaskreytingu og hamingjuóskir með valið á jólahúsi 2021.


