Benóný Þór Benonýsson, sem jafnan er kallaður Binni Þór, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild ÍBV. Samningurinn gildir til næstu tveggja ára.
Binni Þór er ungur og efnilegur hornamaður sem hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Hann hóf að æfa handknattleik 15 ára gamall og hefur síðan þá sýnt mikinn metnað og dugnað. Þá þykir hann einstaklega góður liðsmaður, jafnt innan vallar sem utan.
Á síðasta tímabili var Binni Þór hluti af bikarmeistaraliði 3. flokks ÍBV.
Það verður spennandi að fylgjast með Binna Þór taka næstu skref á sínum ferli. Við óskum honum til hamingju með samninginn!

