08.05.2020
Hafnarvogin í Vestmannaeyjum bilaði með þeim afleiðingum að það hafði áhrif á niðurstöður vigtunar. Gögn sýna að veruleg frávik hafi verið í útreikningum ísprósentu vegna bilunarinnar og að hún hafi hugsanlega viðgengist lengur en Fiskistofa telur. Þetta getur hafa orðið til þess að upplýsingar sem notaðar hafa verið við aflaskráningu hafa verið rangar.
Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins vegna málsins segir Fiskistofa að samkvæmt þeim upplýsingum sem stofnunin hafi „biluðu kraftnemar í hafnarvoginni í Vestmannaeyjum í mars sl. og var viðgerð lokið undir lok sama mánaðar. Margt bendir til þess að bilunin hafi haft áhrif á niðurstöður hafnarvigtunar að einhverju leyti. Ljóst er að skekkja í hafnarvigtun getur í einhverjum tilvikum ruglað íshlutfall við endurvigtun sem er mismunur á vigtun á hafnarvog og niðurstöðu endurvigtunar hjá vigtunarleyfishafa.“
Neikvæð 63 kíló af ís
En samkvæmt gögnum sem Morgunblaðið hefur undir höndum eru dæmi sem sýna að bilunin hafi komið upp mun fyrr en í mars, þvert á það sem Fiskistofa segir í svari sínu. Til að mynda sýndi vigtun 15 kara af gullkarfa 28. janúar með hafnarvog í Vestmannaeyjum að brúttóvigt (fiskur og ís) hefði verið 4.130 kíló, þar af 3.728 kíló af fiski og 402 kíló af ís. Ísprósentan var því 9,73%.
Níu kör voru tekin til endurvigtunar og voru í þeim 465 kíló af ís sem merkir að samkvæmt hafnarvoginni ættu þá að vera neikvæð 63 kíló af ís í þeim sex körum sem ekki voru endurvigtuð en 310 kíló samkvæmt endurvigtun og nam því hlutfallið 17,21%. Sama dag sýndi endurvigtun á þremur körum af löngu 155 kíló af ís en hafnarvogin 101 kíló, eða frávik sem nemur 53%.
Sambærilega sögu er að segja af vigtun tveggja kara af löngu 22. febrúar. Þá var brúttóvigt karanna 746 kíló á hafnarvog en 486 kíló við endurvigtun, nemur því frávikið 53,4%. Mældist ís í körunum 360 kíló, 48,3%, á hafnarvog en 100 kíló, 20,6%, við endurvigtun.
Grundvöllur eftirlits
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði vigtunarleyfishafi gert tilraun í febrúar til þess að koma á framfæri athugasemdum um stöðu vigtunarmála í Vestmannaeyjum, en það var fyrst þegar starfsmenn Fiskistofu sáu frávikin við yfirstöðu vigtunar í mars, sem kom til vegna frávikanna, að uppgötvaðist að frávikin væru óvenjuleg og málið fyrst þá tekið til nánari skoðunar.
Hlutfall íss við vigtun skiptir fyrst og fremst máli hvað varðar eftirlit með aflaskráningu og geta mikil frávik í ísprósentu frá meðaltali útgerðar orðið til þess að hert verði eftirlit með viðkomandi útgerðaraðila. Þá hafa vigtunartölur sem sendar eru Fiskistofu frá hafnarvogum og vigtunarleyfishöfum meðal annars verið nýttar til grundvallar nýlegri skýrslu stjórnvalda um mat á áreiðanleika endurvigtunar, umfangi og ástæðum frávika og hugsanlegum úrbótum. Sögðu skýrsluhöfundar frávik í talnagögnum benda til „skipulags ofmats íshlutfalls upp á um 1,7% að meðaltali“.
Lesa má alla fréttina á mbl.is / Forsíðumynd Hólmgrei Austfjörð